Jóhannes Karl og Siggi Jóns taka við karlaliði ÍA

Jó­hann­es Karl Guðjóns­son er nýr þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu og Sigurður Jónsson verður aðstoðarþjálfari. Frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá KFÍA í kvöld.

Jóhannes Karl tekur við liðinu af Jóni Þóri Haukssyni sem var aðalþjálfari liðsins eftir að  hafa tekið við liðinu í ágúst s.l. eftir að Gunnlaugur Jónsson hætti sem þjálfari liðsins. Í gær var ljóst að Jón Þór fengi ekki tækifæri til þess að stýra liðinu áfram.

Samkvæmt heimildum Skagafrétta ræddi meistaraflokksráð karla m.a.

við Jón Þór Hauksson, Sigurð Jónsson og Heimi Guðjónsson.

Fréttatilkynningin frá ÍA í heild sinni er hér fyrir neðan:

Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA hefur ráðið Jóhannes Karl Guðjónsson sem þjálfara meistaraflokks karla. Jóhannes Karl er uppalinn hjá ÍA og hefur mikla reynslu sem leikmaður hér á landi og sem atvinnumaður erlendis m.a. hjá Burnley í Englandi. Undanfarið hefur Jóhannes Karl þjálfað HK í Kópavogi með góðum árangri.

Sigurður Jónsson hefur jafnframt verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA. Sigurður hefur undanfarin ár verið þjálfari yngri flokka hjá ÍA og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðustu vikurnar en einnig hefur hann þjálfað knattspyrnufélagið Kára á Akranesi. Sigurður er einn sigursælasti leikmaður Knattspyrnufélags ÍA og hefur víðtæka reynslu sem leikmaður og atvinnumaður erlendis m.a. hjá Arsenal í Englandi. Sigurður hefur einnig mikla reynslu sem þjálfari hér á landi og í Svíþjóð þar sem hann þjálfaði m.a. úrvalsdeildarfélagið Djurgården um tveggja ára skeið.

Það er mikill heiður og stór áskorun fyrir mig að takast á við að þjálfa ÍA, félagið sem ég er alinn upp í og félagið sem ég hef alltaf litið á sem mitt félag. Í raun er draumur minn að rætast með þessari ráðningu og það er sérstaklega skemmtilegt að fá tækifæri til að vinna með reynsluboltanum Sigurði Jónssyni sem ég horfði á með lotningu á fótboltavellinum þegar ég var lítill strákur. Framtiðin er björt í fótboltanum á Akranesi og það er mjög spennandi að fá að taka þátt í því metnaðarfulla uppbyggingarstarfi sem unnið er á því sviði í bænum mínum“ segir Jóhannes Karl, nýráðinn þjálfari meistaraflokks ÍA í knattspyrnu karla.

Knattspyrnufélag ÍA bindur miklar vonir við samstarfið við Jóhannes Karl og Sigurð og óskar þeim báðum góðs gengis í störfum sínum.

Meistaraflokksráð, stjórn og nýráðnir þjálfarar meistaraflokks karla

Meistaraflokksráð, stjórn og nýráðnir þjálfarar meistaraflokks karla

Knattspyrnufélag ÍA vill sérstaklega þakka Jóni Þór Haukssyni fyrir frábært og óeigingjarnt starf sem aðstoðarþjálfari í fjögur leiktímabil og sem aðalþjálfari meistaraflokks karla undanfarnar vikur. Einnig vill félagið þakka öðrum í þjálfarateyminu fyrir gott starf en það eru þeir Ármann Smári Björnsson, Sigurður Jónsson, Þórður Guðjónsson og Guðmundur Hreiðarsson.

Framundan eru spennandi tímar í knattspyrnunni á Akranesi þar sem byggt verður á gildum félagsins en þau eru metnaður, vinnusemi, þrautseigja, virðing og agi.

Akranesi 12. október 2017
Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA