Besta eða versta „gabb“ knattspyrnusögunnar?

Árgangur 1979  lét mikið að sér kveða á Árgangamóti ÍA sem fram fór um s.l. helgi. Hópurinn er „þéttur“ og stendur vel saman í þeim verkefnum sem þeir þurfa að leysa.

Rándýr þjálfari var ráðinn fyrir mótið en það var enginn annar en útvarpsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson eða Máni á X-inu.  Og á lokahófi Árgangamótsins stal þessi hópur senunni svo ekki sé meira sagt.

Máni hefur mikla reynslu sem knattspyrnuþjálfari og eins og sjá má á myndinin hér fyrir neðan var hann alls ekki sáttur við lélegustu „ginningu“ knattspyrnusögunnar sem leikmenn 1979 árgangsins buðu upp á.

Er þetta gabb það besta eða það versta í knattspyrnusögunni?

Hugmyndasmiðurinn á bak við þetta umdeilda „gabb“ var Sveinbjörn Geir Hlöðversson formaður Knattspyrnufélags Kára.

Sveinbjörn ætlaði að „gabba“ mótherjana alveg upp úr skónum eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.

Það sem kom upp um Sveinbjörn er að hann skýtur aldrei á markið með tunguna úti – aðeins körfuboltamaðurinn Michael Jordan var fær um leika listir sínar í íþróttum með tunguna lafandi.

Hér fyrir neðan leggur Sveinbjörn allt í „gabbið“ og stekkur „hátt“ yfir boltann á meðan andstæðingarnir bíða pollrólegir.

Hermann Geir Þórsson, sem lék með mfl. ÍA á sínum tíma undir stjórn Ólafs Þórðarsonar, kom síðan aðvífandi og þrumaði í boltann með vinstri eins og honum einum er lagið. Hermann hitti reyndar ekki á markið en skotið var fast – virkilega fast.

Er þetta gabb það besta eða það versta í knattspyrnusögunni?

Eitt helsta umræðuefnið hjá hinum glæsilega 1979 árgangi eftir Árgangamótið 2017 voru búningar liðsins.

Eins og sjá má þá gerði einhver þau grundvallarmistök að setja búningana í þurrkara eftir síðasta þvott.

Eins og flestir vita þá geta sum efni minnkað eða hnökrast í þurrkaranum eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Er þetta gabb það besta eða það versta í knattspyrnusögunni?


Fleiri myndir frá Árgangamótinu eru hér fyrir neðan:

Myndasyrpa: Árgangamót ÍA 2017 – barátta og sigurgleði

Og á fésbókarsíðu skagafrettir.is