Biðin á enda – framkvæmdir hefjast við Frístundamiðstöðina

Nú styttist í að framkvæmdir hefjist við nýja frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi. Akraneskaupstaður hefur samþykkt að halda áfram með verkefnið nú þegar útboðsferlinu er lokið. Stjórn Golfklúbbsins Leynis hefur fengið heimild til þess að semja við verktaka f.h. Akraneskaupstaðar

Í tilkynningu frá Golfklúbbnum Leyni kemur fram að framkvæmdir muni hefjast á næstunni, í desember og í síðasta lagi í janúar 2018.  Áætlaður framkvæmdakostnaður er 306 mkr án VSK og mun Akraneskaupstaður í gegnum fasteignafélag Akraneskaupstaðar fjármagna allan framkvæmdakostnað til loka verkefnis.

Framlag GL til verksins mun felast í greiðslum á ákveðnum verkliðum sem innifela hönnun, niðurrif, jarðvinnu og þátttöku í umframkostnaði. Stuðst verður við eigin fjármögnun, styrki og annars konar samvinnu yfir 10 ára tímabil.


Verkefnið verður unnið í tveimur áföngum þar sem fyrri áfangi verksins verður tekin í nokun undir lok sumars 2018 og sá síðari vorið 2019 og verður Frístundamiðstöðin þá fullkláruð að öllu leyti.

Fyrri áfangi verksins tekur til afgreiðslu og skrifstofuhluta meðan áfangi tvö tekur til salar, setustofu, eldhús, og búningsaðstöðu.

Reynt verður eftir fremsta megni að taka inniaðstöðu í kjallara í notkun veturinn 2018/2019.

Samingar um Frístundamiðstöð við Garðavöll undirritaðir

Glæsileg Frístundamiðstöð fyrirhuguð við Garðavöll