Bjarnheiður næsti formaður Samtaka ferðaþjónustunnar?

Skagakonan Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Katla DMI, ætlar að sækjast eftir formannsembættinu í Samtökum ferðaþjónustunnar. En Grímur Sæmundsen sem verið hefur forsvari fyrir samtökin síðustu fjögur ár ætlar að láta staðar numið á aðalfundi þeirra sem fer fram 21. mars n.k.

Þetta kemur fram á ferðavefnum turisti.is.

Bjarnheiður segir ástæðuna fyrir framboðinu sínu vera fyrst og fremst þá að hún hafi rekið ferðaþjónustufyrirtæki í rúm 20 ár og að ferðaþjónusta hafi verið hennar aðalstarf og jafnframt hennar helsta áhugamál.

„Ég hef fengið tækifæri til að koma að greininni frá mörgum hliðum, meðal annars við stefnumótunarvinnu fyrir landshluta og sveitarfélög, starfa í ýmsum ráðum og nefndum auk kennslu, bæði við Ferðamálaskólann í Kópavogi og við Háskóla Íslands. Ég ber hag þessarar atvinnugreinar mjög fyrir brjósti og langar til að leggja mitt af mörkum á afgerandi hátt á þessum vettvangi atvinnurekenda. Til þess að tryggja veg hennar og vanda í framtíðinni,” segir Bjarnheiður í viðtali á turisti.is.

Að mati Bjarnheiðar stendur ferðaþjónustan frammi fyrir mörgum stórum úrlausnarefnum um þessar mundir og því mikilvægt að framsýni og fagmennska séu viðhafðar bæði hjá fyrirtækjum og ríkisvaldinu við allar ákvarðanir.

Þórir Garðarsson, núverandi varaformaður, hefur áður tilkynnt að hann óski einnig eftir formannssætinu.