Sjáðu mörkin úr stórsigri ÍA gegn Þór – mark ársins hjá Arnari?

Skagamenn fóru á kostum í gær í 5-0 sigri ÍA gegn Þór frá Akureyri í Inkasso-deild karla í knattspyrnu.

Með sigrinum þokaði ÍA sér í annað sæti deildarinnar á eftir HK sem er í efsta sæti.

Varnarmenn ÍA voru fremstir í flokki þegar kom að markaskorun og Arnar Már Guðjónsson skoraði eitt af mörkum ársins.

Mörkin má sjá hér fyrir neðan en hann var sýndur á ÍA TV.