Framkvæmdir við nýtt fimleikahús hefjast fljótlega

Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi.

Framkvæmir við nýtt fimleikahús hefjast í ágúst á þessu ári og eru áætluð verklok í desember 2019. Í síðustu viku var undirritaður samningur á milli Akraneskaupstaðar og Spennt ehf. sem átti lægsta tilboðið í verkefnið.

Alls bárust fimm tilboð í verkið  og var Spennt ehf. lægstbjóðandi með samtals 607 mkr.

Nýtt fimleikahús verður byggt við hlið íþróttahússins á Vesturgötu.

Um er að ræða nýbyggingu á fimleikasal sem verður 1640 m² að stærð.

Í salnum verður steypt áhorfendastúka en rými undir henni verður síðan nýtt undir sturtur fyrir núverandi búningsklefa sem fyrir eru í þróttahúsinu. Búningsklefar í eldri byggingu íþróttahússins verða endurnýjaðir sem og einnig anddyri og kennslurými þar sem frístund Brekkubæjarskóla hefur verið starfandi. Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki í þaki, þakeiningum, lögnum, loftræstingu, raflögnum, frágangi að innan og að utan og lóðargerð umhverfis húsið.

„Fimleikafélag Akraness telur á fjórða hundruð iðkenda og er ört stækkandi félag. Að vera komin á þetta stig að framkvæmdir eru að hefjast eru afar gleðileg tíðindi fyrir bæjarfélagið og erum við í skýjunum að þetta sé loksins að gerast eftir mikinn undirbúning og vinnu starfsfólks bæjarins og fimleiksfélagsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri í viðtali á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

http://localhost:8888/skagafrettir/2017/03/17/fimleikahusid-verdur-byggt-vid-vesturgotuna-samthykkt-i-baejarradi/

http://localhost:8888/skagafrettir/2017/09/07/fimleikahusid-verdur-staerra-en-upphaflega-var-gert-rad-fyrir/