Hvernig er skatturinn sem þú borgar nýttur á skóla – og frístundasviði Akraness?



Í hvað fara krónurnar okkar er yfirskriftin á kynningarmyndböndum sem Akraneskaupstaður hefur látið útbúa.

Í þessum myndböndum er fjárhagsáætlun kaupstaðarins fyrir árið 2019 kynnt en sami háttur var hafður á fyrir ári síðan.

Myndböndin veita upplýsingar um einstaka málaflokka innan stjórnsýslunnar. Fyrsta myndbandið til kynningar er um skóla- og frístundasvið fyrir árið 2019.

Muninn kvikmyndagerð ehf. sá um framleiðslu efnisins og Margrét Blöndal sem talar inn á myndböndin ásamt Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra.

Auglýsing



Auglýsing