Hörður og Stefán fá tækifæri að sýna sig og sanna fyrir Eiði Smára



Skagamennirnir Hörður Ingi Gunarsson og Stefán Teitur Þórðarson fá tækifæri til að sýna sig og sanna fyrir nýjum landsliðsþjálfurum U-21 árs landsliðs Íslands á næstunni.

Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsþjálfarar U21 karla, völdu þá Hörð og Stefán í hópinn sem mætir
Tékklandi og Katar. Um er að ræða fyrstu leiki liðsins undir stjórn hans og Eiðs Smára Guðjohnsen.

Ísland mætir Tékklandi á Pinatar á Spáni 22. mars klukkan 11:00 áður en liðið heldur til Katar og mætir þar heimamönnum 25. mars klukkan 15:30.

Hópurinn

Elías Rafn Ólafsson | FC Midtjylland
Patrik Sigurður Gunnarsson | Brentford
Alfons Sampsted | IFK Norrköping
Axel Óskar Andrésson | Viking
Jón Dagur Þorsteinsson | Vendsyssel
Mikael Neville Anderson | Excelsior
Ari Leifsson | Fylkir
Hörður Ingi Gunnarsson | ÍA
Alex Þór Hauksson | Stjarnan
Kristófer Ingi Kristinsson | Willem II
Torfi Tímoteus Gunnarsson | KA
Willum Þór Willumsson | Bate Borisov
Daníel Hafsteinsson | KA
Stefán Teitur Þórðarson | ÍA
Kolbeinn Birgir Finnsson | Brentford
Sveinn Aron Guðjohnsen | Ravenna
Jónatan Ingi Jónsson | FH
Brynjólfur Darri Willumsson | Breiðablik
Dagur Dan Þórhallsson | Mjolndalen
Hjalti Sigurðsson | KR

Auglýsing



Auglýsing