Grasrótarstarf í íþróttum og menningu fær tæplega 10 milljónir kr.



Akraneskaupstaður úthlutaði styrkjum í dag fyrir tæplega 10 milljónir kr.

Um var að ræða 7,2 milljónir sem fara í skóla-, íþrótta- og menningartengd verkefni, og 2,5 milljónir kr. fara í þróunar- og nýsköpunarverkefni.

Markmiðið með styrkveitingunum er að styðja við grasrótarstarf á sviði menningar- og íþróttamála og hefur Akraneskaupstaður frá árinu 2014 styrkt rúmlega 200 verkefni fyrir um 40 m.kr.

Styrkhafar í ár á sviði íþróttaverkefna eru 16 talsins og á sviði menningarverkefna 13 talsins.

Nánar á vef Akraneskaupstaðar:

Styrkir til íþróttatengdra verkefna eru eftirfarandi:

  • Brynhildur Traustadóttir Sundfélagi Akraness hlýtur styrk til að mæta kostnaði við ferðir á æfingar í 50 m. laug á höfuðborgarsvæðinu kr. 200.000.
  • Brynjar M. Ellertsson Badmintonfélagi Akraness hlýtur styrk upp í persónulegan kostnað við keppnisferðir kr. 200.000.
  • Matthías Leó Sigurðsson Keilufélagi Akraness hlýtur styrk upp í persónulegan kostnað við keppnisferðir kr. 200.000.
  • Þjótur hlýtur styrk við íþróttastarf fatlaðra á Akranesi kr. 300.000.
  • Hnefaleikafélagið hlýtur styrk til að fjárfesta í búnaði sem nýtist öllum iðkendum félagsins til æfinga kr. 100.000.
  • Badmintonfélagið hlýtur styrk til kaups á strengingarvél fyrir iðkendur félagsins kr. 321.690.
  • Keilufélagið hlýtur styrkur upp í kaup á Specto upptökuvél sem nýtist til að taka upp hvert kast iðkenda. kr. 200.000.
  • Klifurfélagið hlýtur styrk til kaupa á falldýnu sem mun nýtast til að mun auka öryggi iðkenda við klifur kr. 300.000.
  • Pílufélagið hlýtur styrk til búnaðarkaupa fyrir nýstofnað félag á Akranesi kr. 50.000.
  • ÍA hlýtur styrk til að greiða niður kostnað við að bjóða félögum innan bandalagsins upp á fría þjónustu sérhæfðs íþróttasálfræðings kr. 450.000.
  • ÍA hlýtur styrk upp í kaup á lyftingaáhöldum í Akraneshöll fyrir íþróttahópa innan ÍA kr. 200.000.
  • Kári hlýtur styrk til að hefja uppbyggingu á starfi yngri iðkenda í félaginu frá 10 ára aldri og yngri kr. 200.000.
  • Sundfélagið hlýtur styrk til að byggja upp deild með sundknattleik kr. 150.000.
  • Körfuknattleiksfélagið hlýtur styrk til að bjóða upp á hugarþjálfun fyrir iðkendur í 7.-10. bekk kr. 200.000.
  • Sundfélagið hlýtur styrk til að mæta útlögðum kostnaði vegna æfinga í 50 metralaug á höfuðborgarsvæðinu fyrir íslandsmeistaramót kr. 204.160.
  • FIMA hlýtur styrk til að nýta markþjálfun meðal iðkenda til að draga úr brottfalli eldri iðkenda kr. 500.000.
    Styrkir til menningartengdra verkefna eru eftirfarandi:
  • Dansstúdíó Írisar hlýtur styrk vegna danssýninga, símenntunar og gesta kennara kr. 465.000.
  • Docfest ehf. hlýtur styrk fyrir barnadagskránna „Akranes með okkar augum“ á IceDocs heimildamyndahátíðinni sem verður haldin á Akranesi í júlí kr. 500.000.
  • Hljómur, kór eldri borgara hlýtur styrk fyrir almennt kórastarf kr. 100.000.
  • Kvennakórinn Ymur hlýtur styrk fyrir tónleikar í vor eða á Írskum dögum kr. 165.000.
  • Leikfélagið Skagaleikflokkurinn hlýtur styrk fyrir götuleikhús á Írskum dögum kr. 175.000
  • Leikfélagið Skagaleikflokkurinn hlýtur styrk fyrir leiklistarnámskeiðahald kr. 280.000
  • Leiklistarklúbbur FVA hlýtur styrk til uppsetningar söngleiksins Rock of Ages kr. 550.000
  • MTM ehf. hlýtur styrk fyrir „Saga og sýning um útgáfu Sementspokans og sögu Starfsmannafélags Sementsverksmiðjunnar“ kr. 150.000.
  • Nemendafélag Brekkubæjarskóla hlýtur styrk til uppsetningar söngleiksins Leitin kr. 550.000.
  • Norræna félagið á Akranesi hlýtur styrk til „Gestgjafar fyrir stjórnarfund vinabæjarfélaga“ kr. 100.000.
  • Skátafélag Akraness hlýtur styrk fyrir þátttöku tveggja ungra skáta frá Skátafélagi Akraness á Alheimsmóti Skáta sem haldið er fjórða hvert ár kr. 100.000.
  • Skólakór Grundaskóla (stjórnandi Valgerður Jónsdóttir) hlýtur styrk fyrir Landsmót barna- og unglingakóra sem fór fram í Grundaskóla á Akranesi 15.-17. mars 2019 kr. 250.000.
  • Skylmingarfélagið Væringjar hlýtur styrk fyrir „Sverð og Riddaramennska: Kynning á sögulegum evrópskum skylmingum“ kr. 100.000.

Styrkir til þróunarverkefna á skóla- og frístundasviði

  • Frístundamiðstöðin Þorpið hlýtur styrk fyrir verkefnið „K567- klúbbastarf“ fyrir börn 10- 12 ára kr. 500.000.
  • Grundaskóli hlýtur styrk fyrir „Verkefnamiðað nám á unglingastigi- Útvarp Grundaskóli“ sem felur í sér að efla upplýsingatækni og samþættingu náms kr. 750.000.
  • Tónlistarskólinn á Akranesi hlýtur styrk fyrir „ Þróun kennslu yngri barna við Tónlistarskólann á Akranesi“ en markmið verkefnisins er að brúa bil á milli leikskóla og forskóla kr. 1.250.000.

    Frá styrkveitingunni í Bókasafninu. Mynd/Akraneskaupstaður/ Myndasmiðjan.

Auglýsing



Auglýsing