Kvikmyndir í aðalhlutverki – stór alþjóðleg hátíð á Akranesi 17.-21. júlí


Kvikmyndir verða í aðalhlutverki á Akranesi dagana 17.-21. júlí hér á Akranesi. Alþjóðleg kvikmyndahátíð, IceDocs, hefst með formlegum hætti hér á Akranesi í kvöld, 17. júlí.

Myndir hátíðarinnar eru mjög fjölbreyttar og ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi. Á hátíðinni verða sýndar yfir 50 heimildamynd víðsvegar að úr heiminum og er fjöldi erlendra gesta væntanlegur á Skagann að þessu tilefni.

Eins og áður segir opnar hátíðin formlega í kvöld með sýningu á pólsk/íslensku myndinni In Touch.

Myndin fjallar um aðflutta Pólverja á Íslandi og samskipti þeirra við ættingja þeirra heima í smábænum Stare Juchy, en þriðjungur bæjarins hefur flutt til Íslands.

Hátíðin stendur einnig fyrir viðamikilli barnadagskrá sem hefst fimmtudaginn 18. júlí með talsettum heimildamyndum um börn fyrir börn og lýkur á laugardaginn með ratleik um bæinn og fjölskylduskemmtun á Akratorgi.

Nánari upplýsingar hér: