Góður árangur hjá sundfólki ÍA í Hafnarfirði


Ingibjörg Svava Magnúsardóttir gerði sér lítið fyrir og sló 14 ára gamalt Akranesmet i 13-14 ára flokki í 1.500 metra skriðsundi á Extra mótinu sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Gamla metið var frá árinu 2005.

Sundfélag Akraness var með 13 keppendur, og var árangurinn góður og margir sem bættu árangur sinn.

Mótið í Hafnarfirði var síðasta mótið fyrir sjálft Íslandsmótið sem fram fer eftir þrjár vikur.

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir

Eins og áður segir setti Ingibjörg Svava Magnúsardóttir nýtt Akranesmeti í 1500m skriðsundi í telpnaflokki. Hún kom í mark á 19.04.36 mín., Gamla metið átti Lea Hrund Guðjónsdóttir á tímanum 19.21.77 mín. frá 2005.

Til fróðleiks má geta þess að til þess að synda 1.500 metra í Jaðarsbakkalaug þarf að fara 60 ferðir, eða 30 ferðir í Ásvallalaug sem er 50 metrar.

Brynhildur Traustadóttir átti lika gott sund í 1500m skriðsundi sem skilaði henni 1. sæti.

Verðlaun eru veitt fyrir sigahæstu sundmenn í kvenna og karlaflokki, átta bestu, og Brynhildur var hér i 5. sæti með fyrir 1500m skriðsundið.

Enrique Snær Llorens var i 2. sæti i 800m skiðsund á tímanum 8.52.48, og bætti hann tíma sinn í greininni um heilar 12 sekúndur. Enrique Snær er aðeins 5 sekúndum frá því að bæta elsta Akranesmetið í fullorðinsflokki, en það er í eigu Gunnars Á. Ársælssonar frá árinu 1988, 8:47,46 mín.

Verlaunasæti:
1: sæti
Brynhildur Traustadóttir 1500m skriðsund opinn flokkur.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 200m fjórsund 13-14 ára
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 100m Bringusund 13-14 ára

2. sæti
Enrique Snær Llorens 800m skriðsund opinn flokkur
Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir 200m bringusund 13-14 ára.
Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir 100m baksund 13-14 ára.
Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir 100m fjórsund 13-14 ára.
Brynhildur Traustadóttir 200m skriðsund opinn flokkur.

3. sæti
Enrique Snær Llorens 100m bringusund 16-17 ára.
Atli Vikar Ingimundarsson 100m flugsund opinn flokkur.