Helgargrunnnámskeið hjá CrossFit Ægi um næstu helgi


CrossFit Ægir á Akranesi hefur á undanförnum tveimur starfsárum fjölgað í iðkendahópi stöðvarinnar jafnt og þétt.


Frá því að líkamsræktarstöðin var opnuð við Vesturgötu 119 á Akranesi hafa fjölmargir farið í gegnum grunn-námskeið hjá CrossFit Ægi.

Áhugasömum er bent á að helgar grunn-námskeið fer fram um næstu helgi, 16.-17. nóvember.

Kennt er laugardag og sunnudag frá kl. 13.30-16.30 báða dagana.

Verð kr. 18.900 kr. fyrir námskeiðið og mánuð í CrossFit Ægi að námskeiði loknu.

Skráning á netfanginu:

[email protected]

Eða í gegnum fésbókarsíðu CrossFit Ægis: