Jens Heiðar er nýr slökkviliðsstjóri Akraness og Hvalfjarðarsveitar


Jens Heiðar Ragnarsson er nýr slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef Akraneskaupstaðar í dag.

Alls bárust 11 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Umsjón með ráðningunni höfðu sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað. Hagvangur veitti ráðgjöf við ráðningaferlið.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráða Jens Heiðar Ragnarsson í starf slökkviliðsstjóra.

Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir m.a.

Bæjarstjórn Akranes vill nota þetta tækifæri til að þakka Þránni Ólafssyni fyrrverandi slökkviliðsstjóra fyrir hans störf fyrir Akraneskaupstaðar og óskar honum velfarnaðar.


Jens Heiðar hefur starfað í slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar frá árinu 1998. Hann hlaut löggildingu sem slökkviliðsmaður árið 2002 og hefur auk þess reykköfunarréttindi, lokið námskeiði fyrir stjórnendur hlutastarfandi slökkviliða og þjálfunarstjóra II. Hann hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir Félag íslenskra rafvirkja og Rafiðnaðarsamband Íslands. Jens Heiðar hefur starfað sem stjórnandi á vettvangi, þjálfað og stýrt aðgerðum sem flokkstjóri klippuflokks í björgun fólks úr bílslysum frá árinu 2008. Hann hefur starfað sem þjálfunarstjóri og skipulagt og stýrt æfingum slökkviliðsins og hefur lagt fram æfingaráætlanir ásamt því að kenna nýliðum í slökkviliðinu.

Jens Heiðar hefur sveinsbréf og meistararéttindi í rafvirkjun. Hann hefur jafnframt fagréttindi sem raflagnahönnuður og raffræðingur. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á virkni vélbúnaðar, viðhaldi og viðgerðum.

Hann hefur unnið með fyrirbyggjandi viðhaldskerfi hjá m.a. Sementsverksmiðjunni, Norðuráli og Verkís. Sem starfsmaður hjá Verkís vann hann fyrir fjölda iðnfyrirtækja við hönnun, uppsetningu, verkeftirlit og prófanir á ýmsum búnaði.

Jens Heiðar hefur auk þess lokið meiraprófi og vinnuvélaréttindi. Jens er kvæntur Sonju Sveinsdóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/12/13/tiu-umsaekjendur-um-starf-slokkvilidsstjora-her-er-listinn/