Frístundastyrkir eru hæstir í Hafnarfirði í samanburði ASÍ í 16 sveitarfélögum


Mörg sveitarfélög styrkja tómstundastarf barna með svokölluðum frístundastyrkjum sem er yfirleitt ákveðin peningaupphæð á ári sem fylgir hverju barni og er ætluð til niðurgreiðslu á tómstundastarfi. Frístundastyrkjunum er ætlað að jafna tækifæri barna til tómstundaiðkunar.

Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári en Ísafjarðarbær og Fjarðarbyggð bjóða ekki upp á neina frístundastyrki samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ á frístundastyrkjum hjá 16 sveitarfélögum landsins. Frá þessu er greint á vef ASÍ.

Af þeim sveitarfélögum sem bjóða upp á slíka styrki eru þeir lægstir í Borgarbyggð, 25.000 kr. á ári. Vestmannaeyjar býður upp á frístundastyrki fyrir lengsta aldursbilið 2-18 ára, en Akureyri í stystan tíma, 6-17 ára gömul börn.

Á Akranesi eru frístundastyrkirnir á svipuðum nótum og í Árborg, Reykjanesbæ og í Vestmannaeyjum eins og sjá má í þessari töflu.

Rannsóknir sýna að þátttaka í tómstundastarfi hefur áhrif á vellíðan barna og unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á forvarnargildi tómstundastarfs og er það því hagur samfélagsins að börn hafi aðgang að slíku starfi. Tómstundir, hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlistarnám eða annað, gegna því bæði því hlutverki að vera afþreying fyrir börn og unglinga auk þess að hafa menntunar- og forvarnargildi. Tómstundir geta verið dýrar og fjölskyldur eru í misjafnri stöðu til að greiða fyrir þær. Styrkirnir stuðla að því að börn geti tekið þátt í tómstundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum og jafna þeir tækifæri barna til tómstundaiðkunar.

Hæstu frístundastyrkirnir í Hafnafirði en lægstu styrkirnir í Borgarbyggð
Af þeim 16 stærstu sveitarfélögum landsins sem úttektin nær til er Hafnarfjörður með hæstu styrkina, 54.000 kr. á barn en styrknum er skipt niður á mánuði þannig að mögulegt er að greiða tómstundir niður um 4.500 kr. á mánuði. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-18 ára.

Næst hæstu styrkirnir eru 50.000 kr. á hvert barn og eru sveitarfélögin Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Reykjavík öll með styrki upp á þá upphæð. Mosfellsbær gerir þó örlítið betur en hin sveitarfélögin en þar hækkar styrkurinn upp í 60.000 kr. fyrir þriðja og fjórða barn. Aldursbilið sem styrkurinn gildir fyrir er lengra á Seltjarnarnesi, Kópavogi og Garðabæ, 5-18 ára en ári styttra í Reykjavík og Mosfellsbæ, 6-18 ára.

Á Ísafirði og í Fjarðarbyggð er ekki boðið upp á neina frístundastyrki en lægsta upphæð frístundastyrks er í Borgarbyggð, 20.000 kr. fyrir hvert barn á aldrinum 6-18 ára. Á Sauðárkróki eru næst lægstu styrkirnir, 25.000 kr. en þeir gilda fyrir börn á aldrinum 5-18 ára og í Fljótsdalshéraði nema styrkirnir 30.000 kr. og gilda fyrir 4-18 ára.

Úttekt þessi nær eingöngu til frístundastyrkja sem foreldrar geta ráðstafað til að niðurgreiða tómstundir barna. Ekki er tekið tillit til annars konar stuðnings við tómstundastarf barna í formi lægra verðs á námskeiðum, ókeypis aksturs eða akstursstyrkja til foreldra sem keyra börn sín langan veg í tómstundir. Samanburðurinn nær til 16 stærstu sveitarfélaga landsins.