Akrafjallsvegi verður lokað í 24 tíma vegna framkvæmda


Akrafjallsvegi verður lokað í kvöld kl. 20.00, mánudaginn 9. mars og stendur lokunin yfir fram til kl. 20.00 þriðjudaginn 10. mars.

Veginum verður lokað vegna vinnu á endurnýjun aðveitu frá Deildartungu, umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Merkingar áætlun er sýnd hér að neðan.