Skora á ríkisstjórn Íslands að taka þátt í uppbyggingu Norðuráls á Grundartanga


Bæjarstjórn Akraness skorar á ríkisstjórn Íslands að taka þátt í því að ýta undir fjárfestingar í uppbyggingaráformum Norðuráls. Fyrirtækið á Grundartanga hefur lýst yfir áhuga á að því að ráðast í allt að 14 milljarða kr. fjárfestingu – ef samkomulag næst við ríkisfyrirtækið Landsvirkjum.

Bæjarstjórnin samþykkti á fundi sínum þann 8. september 2020 svohljóðandi áskorun til ríkisstjórnar Íslands.

„Nýlega hefur Norðurál á Grundartanga upplýst um vilja sinn til þess að ráðast í 14 milljarða fjárfestingu á Grundartanga til frekari fullvinnslu á afurðum sínum og aukinnar verðmætasköpunar gegn því að samkomulag náist við ríkisfyrirtækið Landsvirkjun um langtíma raforkusamninga með viðunandi verði fyrir báða samningsaðila.

Bæjarstjórn Akraness skorar á ríkisstjórn Íslands að nýta þetta einstaka tækifæri til þess að fylgja eftir yfirlýsingum sínum um kröftuga viðspyrnu í efnahagslífinu og vilja sínum til að ýta undir fjárfestingar fyrirtækja þegar þær bjóðast með því að lýsa yfir stuðningi við uppbyggingaráform Norðuráls.“