Skagamenn áberandi í U-21 árs landsliðshóp Íslands



Leikmenn sem hafa verið á mála hjá ÍA eru áberandi í U21 árs landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Ítalíu og Lúxemborg í undankeppni EM 2020.

Alls eru sjö leikmen af alls 30 sem hafa komið við sögu ÍA á ferli sínum.

Stefán Teitur Þórðarson (Silkeborg), Arnór Sigurðsson (CSKA Moskva), Ísak Bergmann Jóhannesson (Norrköping) og Hákon Arnar Haraldsson (FCK Kaupmannahöfn) eru allir í hópnum. Bjarki Steinn Bjarkason (Venezia) og Hörður Ingi Gunnarsson (FH) sem léku báðir með ÍA eru í hópnum ásamt Valdimar Þór Ingimundarsyni hjá Strömgodset sem lék með yngri flokkum ÍA á sínum tíma.

Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru þjálfarar liðsins.

Ísland mætir Ítalíu föstudaginn 9. október á Víkingsvelli og hefst leikurinn kl. 15:30. Liðið leikur síðan gegn Lúxemborg ytra þriðjudaginn 13. október og hefst sá leikur kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Alls eru 30 leikmenn í hópnum en vegna Covid-19 og sóttvarnaaðgerða á landamærum getur aðeins hluti hópsins farið með liðinu til Lúxemborgar.

Nánar má lesa um valið á vef KSÍ.

Hópurinn

Patrik Sigurður Gunnarsson ** | Viborg FF
Elías Rafn Ólafsson ** | Fredericia
Hákon Rafn Valdimarsson * | Grótta
Jón Dagur Þorsteinsson * | AGF
Alex Þór Hauksson * | Stjarnan
Hörður Ingi Gunnarsson * | FH
Stefán Teitur Þórðarson * | ÍA
Brynjólfur Andersen Willumsson * | Breiðablik
Arnór Sigurðsson * | CSKA Moscow
Þórir Jóhann Helgason * | FH
Finnur Tómas Pálmason * | KR
Róbert Orri Þorkelsson * | Breiðablik
Valgeir Lunddal Friðriksson * | Valur
Alfons Sampsted ** | Bodö Glimt
Ari Leifsson ** | Strömgodset
Willum Þór Willumsson ** | BATE
Kolbeinn Birgir Finnsson ** | Dortmund
Sveinn Aron Guðjohnsen ** | OB
Ísak Óli Ólafsson ** | Sonderjyske
Valdimar Þór Ingimundarson ** | Strömgodset
Kolbeinn Þórðarson ** | Lommel
Ísak Bergmann Jóhannesson ** | IFK Norrköping
Andri Fannar Baldursson ** | Bologna
Axel Óskar Andrésson *** | Viking
Kristófer Ingi Kristinsson *** | PSV Eindhoven
Birkir Valur Jónsson *** | Spartak Trnava
Bjarki Steinn Bjarkason *** | Venezia
Danijel Dejan Djuric *** | FC Midtjylland
Hákon Arnar Haraldsson *** | FC Köbenhavn
Mikael Egill Ellertsson *** | SPAL

Athugið að leikmenn eru stjörnumerktir eftir því í hvaða leik/leikjum þeir taka þátt.

*bara leikur gegn Ítalíu
** leikir gegn Ítalíu og Lúxemborg
*** bara leikur gegn Lúxemborg