Sóknarprestarnir slá enn á ný í gegn með söng sínum – Skaginn syngur inn jólin“


Í dag var ellefti glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.

Sóknarprestarnir þrír úr Garða – og Saurbæjarprestakalli, Þráinn Haraldsson, Jónína Ólafsdóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir syngja hér jólalag sem Baggalútur gerði frægt á sínum tíma.

Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.

Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

10. desember:

9. desember:

8. desember:

7. desember:

6. desember:

5. desember:

4. desember:


3. desember:

2. desember:

1. desember:









This image has an empty alt attribute; its file name is stuðng2020-437x1024.jpg