Skaginn 3X fékk Nýsköpunarverðlaun Vesturlands 2020

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi afhentu nýverið Nýsköpunarverðlaun Vesturlands fyrir árið 2020. Að þessu sinni var það Skaginn 3X sem hlaut verðlaunin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SSV.

Undanfarin fjögur ár hafa Nýsköpunarverðlaun Vesturlands verið veitt fyrirtækjum sem þykja hafa komið fram með áhugaverðar nýjungar í rekstri.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa umsjón með valinu en sá háttur er hafður á að atvinnuráðgjafar SSV tilnefna þrjú fyrirtæki og eru tilnefningarnar lagðar fyrir stjórn SSV sem ákveður hver hlýtur verðlaunin.

Verðlaunagripinn í ár hannaði Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður. Páll S. Brynjarsson framvæmdarstjóri SSV afhenti Ingólfi Árnasyni hjá Skaganum 3X verðlaunin og fór afhending fram í Breið nýsköpunarsetri við Bárugötu á Akranesi.

Stofnun Skagans 3X má rekja aftur til ársins 1985 þegar Ingólfur Árnason aðaleigandi Skagans hf. hóf að vinna við nýsköpun og þróun á vinnslubúnaði fyrir fiskiðnað.

Í dag er fyrirtækið rekið í þremur einingum sem eru Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. og 3X Technology á Ísafirði. Þessi þrjú systurfyrirtæki vinna þétt saman að þróun, hönnun og framleiðslu og eru framleiðsluvörurnar kynntar og seldar undir sameiginlegu merki félaganna – Skaginn 3X.

Skaginn hefur selt vörur sínar víðsvegar um heiminn. Meginþunginn hvað fiskiðnað varðar er á svæðinu í kringum Norður Atlantshaf og hvað kjötiðnað varðar þá er hann mestur í Suður- og Norður-Ameríku.

Fyrirtækið er í fremstu röð þeirra íslensku fyrirtækja sem hafa náð að brjóta sér leið inn á alþjóðlegan matvælamarkað með framleiðsluvörur sem í upphafi eru þróaðar í nánu samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki.

Sérstaða Skagans er fólgin í byltingarkenndum tækninýjungum hvað varðar íslausa kælingu á matvælum, sjálfvirkni og lausnum við pökkun og flutning á afurðunum.

Nýsköpunarverðlaun Vesturlands voru fyrst veitt árið 2016:
2016 – The Cave, ferðaþjónusta við hellinn Víðgelmi
2017 – Asco Harvester, Stykkishólmi
2018 – G.Run, Grundarfirði
2019 – Ferðaþjónustan Húsafelli
2020 – Skaginn 3X

VERÐLAUNAGRIPURINN – HÖNNUÐUR: DÝRFINNA TORFADÓTTIR, GULLSMIÐUR