Ninja opnaði glugga nr. 20 í „Skaginn syngur inn jólin“

Í dag var tuttugasti glugginn af alls tuttugu og fjórum opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.

Eins og áður segur er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.

Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Í dag er það ung og efnileg söngkona, Ninja Sigmundsdóttir, sem syngur Silent Night. Lagið er eftir Frans Xaver Gruber og textinn er eftir Joseph Mohr.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

19. desember:

18. desember:

17. desember:

16. desember:

15. desember:

14. desember:

13. desember:

12. desember:

11. desember:

10. desember:

9. desember:

8. desember:

7. desember:

6. desember:

5. desember:

4. desember:


3. desember:

2. desember:

1. desember: