Símon Orri lokaði „Skaginn syngur inn jólin“ með glæsilegum flutningi

Á Aðfangadag var síðasti glugginn af alls tuttugu og fjórum opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“.

Það er óhætt að segja að þetta verkefni hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgdust með verkefninu á hverjum degi.

Símon Orri Jóhansson lokaði dagatalinu með frábærum flutningi eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Öll atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir stýrðu þessu verkefni og kynntu inn tónlistarfólkið. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

23. desember:

22. desember:

21. desember:

20. desember:

19. desember:

18. desember:

17. desember:

16. desember:

15. desember:

14. desember:

13. desember:

12. desember:

11. desember:

10. desember:

9. desember:

8. desember:

7. desember:

6. desember:

5. desember:

4. desember:


3. desember:

2. desember:

1. desember: