Arilíus slær aftur í gegn og nú á golfvellinum

Arilíus Smári Hauksson, kylfingur í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, náði að slá draumahöggið s.l. fimmtudag þegar hann lék 3. braut Garðavallar á einu höggi. Flott byrjun á golfsumrinu hjá Eyjamanninum sem er greinilega listamaður á mörgum sviðum eins og sjá má í frétt sem birtist fyrr á þessu ári.

Arilíus Smári er því í góðum hópi Einherja á Íslandi sem er félag þeirra kylfinga sem ná að slá draumahöggið í golfi.

Á hverju ári eru um 150.000 draumahögg slegin á heimsvísu. Allir kylfingar hafa látið sig dreyma um að fara holu í höggi en hverjar eru líkurnar á því að slíkt gerist?

12.500 – Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir til þess að ná því að fara holu í höggi.

5.000 – Lágforgjafarkylfingur þarf um 5.000 tilraunir til þess að slá boltann ofan í holuna í teighögginu.

2.500 – Atvinnukylfingar þurfa aðeins færri tilraunir, eða um 2.500, til þess að sjá boltann detta ofaní holuna eftir upphafshöggið.

200 ára biðtími – Meðalkylfingur þarf 200 ár til þess að ná draumahögginu en þeir kylfingar sem leika 75 hringi að meðaltali á ári þurfa aðeins að bíða í 30 ár eftir að ná því að fara holu í höggi.

Á hvaða vikudegi eru mestar líkur á því að fara holu í höggi? – Jú, það er á þriðjudögum, samkvæmt tölfræðisamantekt á heimsvísu.

Ragnar Einarsson er yngsti íslenski kylfingurinn sem hefur farið holu í höggi. Hann var sex ára árið 1994 þegar hann fór holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er sá elsti sem hefur afrekað að fara holu í höggi af íslenskum kylfingum. Hann var 98 ára gamall árið 1985 þegar hann sló draumahöggið.

http://localhost:8888/skagafrettir/2021/03/19/arilius-kann-ymislegt-fyrir-ser-i-eldhusinu-kjullarettur-sem-slaer-i-gegn-hja-krokkunum/