Guðmundur valinn í U-19 ára landslið Íslands

Guðmundur Tyrfingsson var nýverið valinn í U-19 ára landslið karla í knattspyrnu og mun hann taka þátt í næsta verkefni liðsins sem er gegn Færeyjum.

Leikirnir fara fram 3. og 6. júní og verður leikið í bænum Svangaskarði. Fyrri leikurinn er gegn U-21 árs landsliði heimamanna en í síðari leiknum verður leikið gegn U-19 ára landsliði Færeyja.

Guðmundur samdi við ÍA í fyrrasumar en hann er fæddur á Selfossi árið 2003 og var lykilmaður í mfl. liði Selfoss áður en hann gekk í raðir ÍA.

Á vef KSÍ kemur fram að U19 karla hefur mætt U19 ára liði Færeyja 22 sinnum. Ísland hefur unnið 17 leiki, þrír hafa endað með jafntefli og tvisvar hafa Færeyjar unnið. Liðin mættust síðast í þessum aldursflokki 14. nóvember 2017 í undankeppni EM 2018. Ísland vann þann leik 2-1 og voru það Kristófer Ingi Kristinsson og Stefan Alexander Ljubicic sem skoruðu mörk liðsins í leiknum.

Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins og eru þetta fyrstu leikir liðsins undir hans stjórn. Hann valdi eftirtalda leikmenn í hópinn.

Hópurinn:

Orri Steinn Óskarsson | FC Köbenhavn
Danijel Dejan Djuric | FC Midtjylland
Dagur Þór Hafþórsson | FH
Logi Hrafn Róbertsson | FH
Úlfur Ágúst Björnsson | FH
Hilmir Rafn Mikaelsson | Fjölnir
Lúkas Logi Heimisson | Fjölnir
Óskar Borgþórsson | Fylkir
Þorsteinn Aron Antonsson | Fulham
Kjartan Kári Halldórsson | Grótta
Kári Daníel Alexandersson | Grótta
Ólafur Örn Ásgeirsson | HK
Guðmundur Tyrfingsson | ÍA
Andi Hoti | Þróttur R.
Jón Vignir Pétursson | Selfoss
Ísak Andri Sigurgeirsson | Stjarnan
Óli Valur Ómarsson | Stjarnan
Kristófer Jónsson | Valur
Jakob Franz Pálsson | Venezia
Pálmi Rafn Arinbjörnsson | Wolves