• Morgunblaðið birti í dag niðurstöður úr skoðanakönnunum sem gerðar voru í samstarfi við MMR á síðastliðnum þremur mánuðum. Í þessum könnunum var spurt um fylgi stjórnmálaflokka landsins fyrir Alþingiskosningarnar 2021 sem fram fara 25. september. Niðurstöðurnar eru samanlagðar úr síðustu þremur könnunum MMR, mælt dagana 24. júní – 6. júlí, 8.-14. júlí og 18.-24. ágúst...

  • Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson úr Golfklúbbnum Leyni varð í öðru sæti á stigalistanum í flokki 17-18 ára á unglingamótaröð GSÍ í golfi. Böðvar Bragi Pálsson, GR, varð stigameistari í þessum flokki. Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun. Hann sigraði á þremur þeirra –...

  • Knattspyrnuliðið Skallablettir frá Akranesi náði áhugaverðum árangri í utandeildarkeppni á dögunum. Utandeildarkeppnir hafa vaxið gríðarlega á undanförnum misserum. Alls voru 8 lið sem tóku þátt í þessari deild þar sem að lið Skallabletta endaði í 5. sæti í riðlakeppninni en í úrslitakeppninni fór liðið á kostum. Árni Þórir Heiðarsson margmiðlunarstjóri liðsins segir að liðið sé...

  • Kvennalið ÍA í knattspyrnu tekur í dag á móti HK úr Kópavogi í næst efstu deild, Lengjudeildinni. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði liðin sem eru í harðri fallbaráttu í Lengjudeildinni. ÍA hafði betur gegn HK, 1-0, á útivelli þegar liðin mættust í fyrri umferðinni. ÍA er með 14 stig í þriðja neðsta sæti eftir...

  • Það var líf og fjör við Akraneshöfnina s.l. laugardag þegar kassabílarallý fór fram fyrir yngstu kynslóðina. Um 20 bílar mættu í keppnisbrautina en bílarnir voru af ýmsum gerðum og stærðum. Ole Jakob Volden var einn af skipuleggjendum viðburðarins. Hann segir í færslu á fésbókinni að frumraun viðburðarins hafi verið lærdómsríkur – og á næsta ári...

  • Alls eru 32 einstaklingar í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19 smits. Alls eru 34 í sóttkví í landshlutanum. Á Akranesi eru 27 einstaklingar í einangrun með Covid-19 og 30 eru í sóttkví á Akranesi. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi sem birtar voru rétt fyrir hádegi í dag, 30. ágúst 2021. Á...

  • Akraneskaupstaður auglýsti í dag laust til umsóknar starf skrifstofustjóra á skrifstofu bæjarstjóra. Skrifstofa bæjarstjóra er ný eining sem stofnuð var um síðustu áramót. Sædís Alexía Sigurmundsdóttir hefur gegnt því starfi frá áramótum en hún var áður deildarstjóri á stjórnsýslu- og fjármálasviði Akraneskaupstaðar. Sædís Alexía hefur starfað hjá Akraneskaupstað í að verða átta ár og hefur...

  • Vegna loftgæðavandamála í húsnæði bæjarskrifstofu Akraness við Stillholt 16-18 mun hluti af starfsfólki skrifstofunnar færa sig um set í nýja vinnuaðstöðu við Dalbraut 4. Um er að ræða nýtt húsnæði sem er ætlað undir starfssemi Félags eldri borgara á Akranesi – FEBAN. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs frá því í gær 26. ágúst 2021....

  • Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir er nýr prestur í Garða – og Saurbæjarprestakalli. Þetta kemur fram á vefnum kirkjan.is. Kjörnefnd kaus sr. Ólöfu Margréti Snorradóttur, til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hennar. Alls sóttu ellefu um og tveir umsækjenda óskuðu nafnleyndar: Árni Þór Þórsson, guðfræðingurEdda Hlíf Hlífarsdóttir, guðfræðingurErna Kristín Stefánsdóttir,...

  • Skóla- og frístundaráð samþykkti á síðasta fundi ráðsins að Hvítahúsið fái tímabundna aðstöðu í húsnæði Akraneskaupstaðar við Suðurgötu þar sem Símenntunarmiðstöð Vesturlands var áður til húsa. Skóla- og frístundráð leggur til að skipaður verði þróunarhópur sem hefur það verkefni að greina núverandi starfsemi og leggja fram framtíðarsýn starfseminnar. Hópurinn jafnframt að stýra þróunarvinnu á Ungmennahúsi...

Loading...