SkagaTV: Nýtt kynningarmyndband um afreksíþróttasvið FVA

Afreksíþróttasvið við FVA er samstarfsverkefni FVA, íþróttafélaga á Akranesi og Akranesbæjar.  Sviðið er hugsað fyrir nemendur sem hafa stundað afreksíþróttir í töluverðan tíma og vilja hafa aukið svigrúm til að stunda íþrótt sína samhliða námi í skólanum.

Samhliða íþróttaiðkun með íþróttafélagi þá stunda nemendur æfingar á skólatíma tvisvar sinnum í viku auk þrekþjálfunar og annarrar fræðslu er tengist íþróttaiðkun. Öll kennsluaðstaða á afreksíþróttasviði er til fyrirmyndar, t.d. fjölnota íþróttahöll, þreksalur, íþróttasalur, sundlaug og keilusalur.

Hér fyrir neðan er nýtt myndband frá Afreksíþróttasviði FVA í samstarfi við Akraneskaupstað og Íþróttabandalag Akraness.

Afreksíþróttasvið FVA from ÍA on Vimeo.

Samhliða íþróttaiðkun með íþróttafélagi þá stunda nemendur æfingar á skólatíma tvisvar sinnum í viku auk þrekþjálfunar og annarrar fræðslu er tengist íþróttaiðkun

Þær íþróttagreinar sem nú standa nemendum á afreksíþróttasviði til boða eru:

  •         badminton
  •         fimleikar
  •         golf
  •         keila
  •         knattspyrna
  •         körfubolti
  •         sund

 

Samhliða íþróttaiðkun með íþróttafélagi þá stunda nemendur æfingar á skólatíma tvisvar sinnum í viku auk þrekþjálfunar og annarrar fræðslu er tengist íþróttaiðkun. Öll kennsluaðstaða á afreksíþróttasviði er til fyrirmyndar, t.d. fjölnota íþróttahöll, þreksalur, íþróttasalur, sundlaug og keilusalur.

Á hverri önn fá nemendur 5 feiningar fyrir þátttöku á afreksíþróttasviði og koma afreksáfangar í stað eininga í íþróttum og frjálsu vali á námsbrautum skólans.


Á hverri önn fá nemendur 5 feiningar fyrir þátttöku á afreksíþróttasviði og koma afreksáfangar í stað eininga í íþróttum og frjálsu vali á námsbrautum skólans.

Góð næring er afreksíþróttafólki mikilvæg. Hjá FVA er starfrækt mötuneyti í nafni Heilsueflandi framhaldsskóla og stendur nemendum á afreksíþróttasviði til boða að kaupa máltíðir þar á lægsta mögulega verði hverju sinni.

Kostnaður vegna námsgagna, fatnaðar og þjálfunar á afreksíþróttasviði er 35.000 kr. á önn.

Einnig er gerð krafa um að nemendur á afreksíþróttasviði setji námið og íþróttaiðkun sína í fyrsta sæti og neyti því engra vímuefna ásamt því að vera með a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.

Nemendur sækja rafrænt um nám í skólanum en umsóknareyðublað um afreksíþróttasviðið er að finna hér.