Frábær keppni hjá sundfólki ÍA – bættu árangur sinn 118 sinnum

Sundkrakkarnir úr Sundfélagi Akraness héldu uppi merkjum ÍA á ÍRB mótinu sem fram fór um s.l. helgi. Á því móti sáust miklar bætingar og greinilegt að æfingar vetrarins hafa að skila sér. Alls bættu keppendur frá ÍA sig 118 sinnum á þessu móti og 84 af þeim bætingum voru hjá keppendum sem eru 12 ára og yngri.

Íris Petra Jónsdóttir náði eftirtektarverðum árangri og bætti hún sig í öllum þeim sundum sem hún keppti í. Hún náði flottum árangri í 100 og 200 m. baksundi – og náði þar lágmörkum inn á Aldursflokkameistaramót Íslands sem fram fer í sumar.

Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Sóley Saranaya Helgadóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Freyja Hrönn Jónsdóttir, Guðbjarni Sigþórsson, Tómas Týr Tómasson og Auður María Lárusdóttir bættu sig líka í öllum sínum greinum.

Magnea Ósk Lárusdóttir, Eva Júlíana Bjarnadóttir og  Dagbjört Birna Magnúsardóttir tóku þátt í sínu fyrsta móti utan Akraness, þær syntu 25 m skriðsund, baksund og bringusund og stóðu sig eins og hetjur, syntu bæði vel og hratt. Greinilegt að þessar flottu stelpur hafa verið duglegar á æfingum í vetur.

Næsta mót hjá þessum keppendum í Sundfélagi Akraness eru á Akranesleikunum sem fram fara 2.- 4. Júní.

Eftirtaldir sundmenn úr ÍA fengu verðlaun á ÍRB mótinu:

Gull

Kristján Magnússon, 200 baksund.
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, 50, 100 og 200 bringusund.

Silfur

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, 400 skriðsund
Kristján Magnússon, 100 bringusund.
Ágúst Júliusson, 50 flugsund.
Alex Benjamin Bjarnasson, 800 skriðsund.

Brons

Kristján Magnússon, 100 flugsund & 100 fjórsund.
Ágúst Júlíusson, 50 skriðsund.
Ngózi Jóhanna Eze, 50 skriðsund og 1500 skriðsund.
Anita Sól Gunnarsdóttir, 50 baksund.
Enqrique Snær Llorens Sigurðsson, 100 bringusund.
Rafael Andri Williamsson, 50 baksund & 50 flugsund