Valdís gæti skrifað nýjan kafla í íslenska golfsögu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni og íþróttamaður Akraness 2016, var hársbreidd frá því að komast inn á Opna bandaríska meistaramótið eftir úrtökumót á Englandi.

Valsdís lék á einu höggi yfir pari vallar á 36 holum og komst hún í þriggja manna bráðabana um tvö laus sæti á risamótinu. Alls eru risamótin fimm á hverju ári í atvinnugolfi kvenna og aðeins þeir allra bestu í veröldinni fá tækifæri á þeim mótum.

Caroline Hedwall frá Svíþjóð og Carly Booth frá Skotlandi léku á -1 samtals og komust beint inn á risamótið. Kelsey MacDonald frá Skotlandi og Meghan MacLaren frá Englandi komust áfram eftir bráðabanann gegn Valdísi Þóru sem fékk skolla á meðan þær fengu par.

Valdís Þóra var því hársbreidd frá því að komast inn á risamótið en íslenskur kylfingur hefur aldrei komist inn á risamót í kvenna – eða karlaflokki.

Það er ekki öll von úti hjá Valdísi Þóru en hún er fyrsti varamaður til þess að komast inn á mótið sem fram fer í júlí. Mótið fer fram á Bedminster í New Jersey, dagana 13.-16. júlí. Í fyrra komst fyrsti varamaðurinn inn þannig að líkurnar eru ágætar að Valdís Þóra komist inn á risamótið.