Er gott að eldast á Akranesi? – Íbúaþing um farsæl efri ár

Íbúaþing um farsæl efri ár á Akranesi verður haldið miðvikudaginn 27. september 2017. Þingið hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 21:00 í Grundaskóla.

Markmið íbúaþingsins er að leita svara við eftirfarandi spurningum:

Hvað er gott við að eldast á Akranesi?
Hvernig viltu sjá málefni eldri borgara á Akranesi þróast?
Hvernig getur Akraneskaupstaður stuðlað að farsælum efri árum?
Hvað getum við sem einstaklingar gert til að stuðla að farsælum efri árum?

Allir íbúar á Akranesi eru velkomnir á íbúaþingið. Sérstaklega er óskað eftir þátttöku eftirtalinna:

Íbúum í aldurshópum 75 ára og eldri
Íbúum í aldurshópnum 60 til 75 ára
Íbúum í aldurshópnum 50 til 60 ára
Starfsfólki sem vinnur í öldrunarþjónustu
Fulltrúum frá stofnunum og félagasamtökum sem vinna að málefninu

Unnið verður í hópum út frá þjóðfundarfyrirkomulagi og verða niðurstöður íbúaþingsins notaðar sem innlegg í stefnumótunarvinnu í málefnum aldraða. Akraneskaupstaður býður þátttakendum upp á léttar veitingar.

Skráning fer fram hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Smelltu hér til að skrá þig.  

Einnig er hægt að skrá sig í þjónustuveri Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð og í síma 433 1000.

Skráning er til og með 20. september 2017.