Heimilt að fjarlægja „bílhræ“ af einkalóðum

Í nýjum úrskurði úskurðarnefndar umhverfis- og auðlindanefndar sem kveðinn var upp þann 3. október sl. kemur skýrt fram að heilbrigðiseftirlitið hefur heimild til þess að fjarlægja númerslausa bíla á einkalóðum, á þeirri forsendu einni að um væri að ræða lýti á umhverfinu.

Úrskurðað var í kærumáli á hendur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja sem fjarlægði, númerslausan ryðgaðan bíl í slæmu ástandi, á einkalóð. Hingað til hefur heilbrigðiseftirlitið litið svo á að ríkari forsendur þyrfti til þess að fjarlægja númerslausa bíla af einkalóðum s.s. að olía væri að leka af bílum eða þá að rúður og ljós væru brotin þannig að slysahætta stafaði af bílflökum.

Það er ljóst að úrskurðurinn auðveldar mjög tiltekt á einkalóðum – sem er fagnaðarefni.