SKAGAMENN – í gamni og alvöru – ný bók eftir Braga Þórðarson

Bókaforlagið mth á Akranesi gefur út bókina SKAGAMENN – í gamni og alvöru eftir Braga Þórðarson á þessu hausti. Í bókina er safnað saman þáttum sem Bragi hefur ritað og birt í Árbókum Akurnesinga á liðnum árum.

Þegar vel er að gáð sést að í þessum skrifum hefur Bragi ofið saman ýmsa þræði úr ævi sinni og starfi, allt frá bernsku til efri ára, og gefa þættirnir því dágóða innsýn í lífshlaup hans.

Brugðið er upp skemmtilegum svipmyndum af samferðafólki og sagðar sögur af því, í gamni og alvöru. Bókin er 22. bók höfundarins.