Björn Bergmann samdi við Rostov í Rússlandi

Skagamaðurinn Björn Berg­mann Sig­urðsson hefur samið við rússneska liðið  FC Rostov en þar er annar íslenskur landsliðsmaður, Sverrir Ingi Ingason. Rússneska liðið kaupir Björn frá Molde í Noregi þar sem hann hefur leikið vel á undanförnum misserum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær fyrrum leikmanns Manchester United.

Björn, sem er 26 ára, gerir samning til tæplega fjögurra ára en hann skoraði 16 mörk á síðustu leiktíð með Molde. Alls hefur Björn leikið 9 leiki með A-landsliði Íslands og hann hefur skorað eitt mark. Hann lék með ÍA á árunum 2007-2008 áður en hann samdi við Lilleström í Noregi. Hann hefur einnig leikið með enska liðinu Wol­ves og danska liðinu FC Kö­ben­havn.

Rostov er í 10. sæti af 16 liðum í rúss­nesku deild­inni eft­ir 20 um­ferðir. Deild­in er í fríi en hefst aft­ur í byrj­un mars en þá mæt­ir Rostov liði Krasnod­ar á úti­velli. Sverr­ir Ingi hef­ur átt fast sæti í liðinu en hann hef­ur spilað 19 af 20 leikj­um liðsins í deild­inni og hef­ur í þeim skorað 2 mörk.

Björn Bergmann Sigurðarson.