Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar hækkar um 40%

Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018 hækkar um 40% og tók breytingin gildi þann 1. janúar. Framlag kaupstaðarins til íþrótta – og tómstundaiðkunar barna verður 35.000 kr. fyrir eitt barn en þessi upphæð var 25.000 kr.

Tómstundaframlagið hækkar síðan um 25% fyrir annað barn og aftur um 25% við þriðja barn. Framlagið skiptist því svona:

  • Foreldri með eitt barn, kr. 35.000
  • Foreldri með tvö börn, kr. 39.375 per barn
  • Foreldri með þrjú börn, kr. 44.479 per barn

Foreldrar skráð sig í íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is og athugað stöðu/nýtingu tómstundaframlagsins. Látið verður vita þegar sú tenging verður tilbúin. Reglur um tómstundaframlag Akraneskaupstaðar má skoða hér.