Nýjar lóðir í Skógarhverfi lausar til umsóknar

Íbúafjöldinn á Akranesi hefur á undanförnum árum farið vaxandi og forsvarsmenn Akraneskaupstaðar undirbúa komu enn fleiri íbúa með nýjum svæðum fyrir húsbyggingar. Í dag voru nýjar lóðir kynntar til sögunnar í Skógarhverfi en u

Um að ræða 12 fjölbýlishúsalóðir við Asparskóga sem tilheyra Skógahverfi 1. áfanga og 29 einnar hæðar par- eða raðhúsalóðir við Álfalund og Akralund sem tilheyra Skógarhverfi 2. áfanga. Lóðirnar eru þegar byggingarhæfar.

Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda reglur Akraneskaupstaðar frá árinu 2015 en auglýsa skal nýjar lóðir sérstaklega með 2ja vikna umsóknarfresti að lágmarki og fer úthlutun fram samkvæmt vinnureglum ef fleiri en einn sækir um hverja lóð.

Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulags- og byggingaskilmálar og aðrar upplýsingar um lóðirnar eru að finna hér, www.akranes.is/nyjarlodir

Sótt er um lóð í gegnum íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is. 

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.