24 ný störf á Akranesi hjá Ísfiski

Um miðjan febrúar hóf fyrirtækið Ísfiskur starfsemi í fiskvinnsluhúsinu sem félagið keypti af HB Granda á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Verkalýðsfélags Akraness.

Alls verða 24 fiskvinnslumenn – og konur í vinnu hjá Ísfiski. Vonir standa til að starfsmönnum fjölgi á næstu misserum þegar fyrirtækið verður komið á fullt skrið í vinnslu á bolfiski.

Ísfiskur er rótgróið fyrirtæki sem hefur verið starfrækt frá árinu 1980. Albert Svavarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að fyrirtækið stefni að því að vinna 4000 tonn af ýsu og þorski á Akranesi.