Árni mælir með lífsstílnum sem „Piddi Loftpressa“ skapaði

Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild karla fer fram laugardaginn 5. maí í Akraneshöllinni þar sem Leiknir úr Reykjavík kemur í heimsókn. Mikil eftirvænting ríkir fyrir viðureignina sem hefst kl. 14.00. Það eru margir sem spá því að Skagamenn nái að koma sér í hóp bestu liða landsins á ný.

Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson er lykilmaður ÍA en hann hefur lagt gríðarlega hart að sér á undanförnum misserum – og komið sterkur til baka eftir erfið hnémeiðsli.

Árni Snær svarar hér fyrir neðan nokkrum laufléttum spurningum. Þar kemur m.a. fram að Árni er á föstu, uppáhaldsdrykkurinn er vatn, Galito er uppáhaldsveitingastaðurinn, Árni vill fá þrist, bounty og hrískúlur í bragðarefinn og hann er með margar sögur sem tengjast Halli Flosasyni.

Fullt nafn: Árni Snær Ólafsson, 26 ára.

Gælunafn sem þú þolir ekki:
Ætla ekki að fara gefa það upp þá myndu eineltisseggirnir sem ég þekki fara að nota það óspart

Hjúskaparstaða
: Er á föstu.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki:
Sem ég man eftir er það 3-0 sigur á KR í 8 liða úrslitum í lengjubikarnum 2008

Uppáhalds drykkur:
Vatn á virkum, humlar um helgar.

Uppáhalds matsölustaður:
Fer mest á Galito.

Hvernig bíl áttu:
Golf Gti ‘01

Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
70 mín og Ríkið yfirburðar þættir

Uppáhalds tónlistarmaður:
Frikki Dór og Drake og hús í andlit

Hvað viltu í bragðarefinn þinn:
Þristur, bounty og hrískúlur verður oftast fyrirvalinu.

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: ,
,Hvernig gengur? Ertu komin á sjó?“ frá mömmu að hafa áhyggjur af mér þegar ég var á sjónum.




Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með þér til Vegas:
Myndi taka 3 mína ríkustu vini til þess að ég gæti geymt veskið eftir heima, forstjóri RafPro Haukur Atli Hjálmars, Andri Adolphs og Jón ‚Cuz‘ Steinar.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt:
Spilaði einu sinni við Hazard hann var mjög góður.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt:
Kári Ársæls er „mökk boring“ inni á vellinum en flottur utanvallar.

Sætasti sigurinn:
Þegar ég var krýndur hraðasti leikmaður ÍA í desember 2017.



Mestu vonbrigðin:
Mikil vonbrigði að hafa slitið krossband í nóvember 2016.

Uppáhalds lið í enska:
Manchester United.

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið
: Myndi signa Sindra Snæfells úr Kára.




Uppáhalds staður á Íslandi:
Garðurinn á Grenigrund 33b er hrikalega huggulegur staður, sérstaklega á Írskum dögum.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi:
Guðmundur Böðvar.



Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi:
Sara Björk.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Gerðist ekki í leik en það var frábært atriði þegar ég náði að reka „Halt“ Flosa af æfingu í fyrrasumar. Erfitt að skrifa það niður spurjið mig eða „Halt“ út í þetta ef þið viljið meiri upplýsingar. Þetta moment er það skemmtilegasta og stoltasta moment sem ég hef upplifað á mínum fótbolta ferli.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú:
Adidas Gloro, ég og Sindri Snæfells leikmaður Kára keyrum Gloro vagninn á Íslandi, vanmetnir skór.




Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla:
Úr mörgu að velja en held það hafi verið enskan.

Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju:
Haltur Flosa, Skarpi Magg og Viktor Helgi

Sturluð staðreynd um sjálfan þig:
Ég hef nú í 1,5 ár lifað eftir menn eru menn lífstílnum sem Piddi Loftpressa startaði og hef verið mjög successfull á meðan og mæli með þeim lífstíl, talið við Pidda ef þið viljið vita hvernig sá lífstíll er.