„On My Mind“ – Ungur Skagamaður með nýtt frumsamið lag

„On My Mind“ er nýtt lag sem Skagamaðurinn Baldur Einarsson birti nýverið á Youtube.

Baldur var að útskrifast úr 10. bekk Grundaskóla á Akranesi.

Hann vakti mikla athygli fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hjartasteinn – og næsta skref á ferli hans á listasviðinu er tónlistin.

Baldur þarf ekki að leita langt eftir góðum ráðum varðandi tónlistina. Faðir hans er Einar Örn Jónsson, sem er þaulreyndur í tónlistarbransanum, sem félagi í hljómsveitinni Í Svörtum Fötum. Lagið „On My Mind“ er eftir Einar Örn og hann á einnig textann.

Móðir Baldurs er Hulda Birna Baldursdóttir frá Akranesi.

Auglýsing