Viltu prófa að klifra? – Smiðjuloftið býður upp á áhugaverða valkosti

Það er margt áhugavert í boði í vetrardagskrá Smiðjuloftsins opnaði nýverið eftir sumarfrí. Smiðjuloftið er afþreyingarmiðstöð þar sem hægt er að stunda klifur, og einnig er aðstaða fyrir ýmsar samkomur, fundi og afmælisveislur.

Klifuríþróttin hefur notið ört vaxandi vinsælda á Akranesi og í hverjum mánuði er boðið upp á kynningarkvöld fyrir nýja klifrara. Slík kynningarkvöld fara fram fyrsta og þriðja hvern miðvikudag í hverjum mánuði.

Klifrað er með þjálfara frá Smiðjuloftinu og farið er í stutta kynningu á húsinu, helstu reglum og umgengni í salnum. Því næst er tekin klifuræfing þar sem skoðað er hvernig klifurleiðir virka og hvernig er best að taka fyrstu skrefin í íþróttinni. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á byrjendakvöldin.

Á Smiðjuloftinu er hæsti línuklifurveggur landsins og það er von okkar að hann verði í fullri notkun í vetur, enda frábær skemmtun og góð líkamsrækt að glíma við klifur í hæstu hæðum. Til þess að línuklifra þarf ákveðna þekkingu og kunnáttu og því býður Smiðjuloftið í samstarfi við Klifurfélag ÍA upp á grunnnámskeið í línuklifri.

Eitt vinsælasta og aðgengilegasta form klifurs er grjótglíma (e. bouldering), en þá er klifrað án nokkurs búnaðar, engar línur, ekkert klifurbelti, ekkert vesen. Það eina sem þarf eru klifurskór. Grjótglíma fer fram á lágum veggjum með dýnu undir til að taka við falli. Grjótglíma einkennist af stuttum leiðum með nokkrum erfiðum og krefjandi hreyfingum, þar sem reynir mikið á styrk, liðleika og útsjónarsemi. Í æfingasölum um allan heim hefur áhugi á grjótglímu vaxið gríðarlega og það sama má segja hérlendis. Grjótglíma er íþrótt sem hentar bæði körlum sem konum.

Á Smiðjuloftinu má finna flotta aðstöðu til grjótglímu og er boðið upp á æfingahóp í grjótglímu fyrir 18 ára og eldri sem vilja æfa í hóp undir leiðsögn þjálfara. Á æfingunum er farið yfir grunnatriði grjótglímunnar, upphitun, tækni, styrk og liðleikaæfingar. Skemmtilegar og krefjandi æfingar við allra hæfi þar sem klifrarar glíma við leiðir við sitt hæfi. Æft verður á mánudögum kl. 20-21.30.

Nánari upplýsingar og skráning: [email protected] eða 6239293