Lokahóf KFÍA: Unnur og Arnar best – Bergdís og Stefán efnilegust

Lokahóf meistaraflokka karla og kvenna hjá Knattspyrnufélagi ÍA fór fram um s.l. helgi. Þar voru ýmsar viðurkenningar veittar á skemmtilegu kvöldi sem fram fór í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka.

Leikmenn ársins í Inkasso-deild kvenna og karla hjá ÍA 2018 eru þau Unnur Ýr Haraldsdóttir og Arnar Már Guðjónsson. Efnilegustu leikmenn ársins voru einnig valdir en það eru þau Bergdís Fanney Einarsdóttir og Stefán Teitur Þórðarson.

Bestu leikmenn í 2. flokki voru einnig valdir: Hlynur Hauksson og Eva María Jónsdóttir. Efnilegust í 2. flokki eru þau Róberta Lilja Ísólfsdóttir og Ísak Bergmann Jóhannesson. Kiddabikarinn fékk Hilmar Halldórsson og Fríða Halldórsdóttir TM bikarinn.

Hlynur Hauksson og Eva María Jónsdóttir, bestu leikmenn 2. flokks.x

300 leikir: Garðar Gunnlaugsson.

150 leikir: Þórður Þ. Þórðarson og Einar Logi Einarsson 

100 leikir: Steinar Þorsteinsson og Arnór Snær Guðmundsson.

Fríða Halldórsdóttir og Hilmar Halldórsson með TM bikarinn og Kidda-bikarinn. 

Róberta Lilja Ísólfsdóttir og Ísak Bergmann Jóhannesson – efnilegust í 2. flokki.

Sveinn Þór Þorvaldsson fékk Adolphsbikarinn fyrir að vera dómari ársins í yngri flokkum KFÍA

Ívar Orri Kristjánsson var valinn dómari ársins hjá KDA, Bjarki Óskarsson fékk viðurkenningu fyrir vel unnin störf hjá KDA

 

 

 

View this post on Instagram

 

Inkasso meistarar 2k18 🏆🏅💸👑 #septfest18 @hallurflosa

A post shared by Árni Snær Ólafsson (@arniolafs) on

 

View this post on Instagram

 

Geggjaður endir á góðu seasoni📈🥇🏆 #septfest18

A post shared by Hörður Ingi Gunnarsson (@horduringi98) on