Hreystigarður fyrir fullorðna á Langasandssvæðinu

Langasandssvæðið á Akranesi fær góða viðbót á næstu misserum. Hreystigarður, sem er sérstaklega ætlaður fyrir fullorðna, verður settur upp fyrir neðan Akraneshöllina.

Þessi framkvæmd var samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness þann 4. okt. s.l. Hreystigarðurinn verður staðsettur við hliðina á ærslabelgnum sem settur var upp á þessu ári.

Hreystigarðurinn verður útbúinn átta hreystitækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar. Jafnframt verður sett upp upplýsingaskilti við garðinn sem sýnir m.a. hvernig unnt sé að nota tækin til fjölbreyttrar líkamsræktar. Heildarkostnaður framkvæmdarinnar nemur um 6 milljónum kr.

Tækin sem um ræðir koma frá fyrirtækinu Norwell og eru sérstaklega hugsuð sem tæki til heilsueflingar utandyra. Norwell hefur m.a. sett um sambærilega garða bæði í Reykjavík og Kópavogi. Norewell er danskt fyrirtæki sem stofnað var árið 2007. Tækin eru vottuð og eru pólýhúðuð með hertu gúmmí sem kemur í veg að þau ryðgi eða festist.