Verður Valdís Þóra sú sjöunda frá Akranesi til að keppa á ÓL?

Svo gæti farið að Valdís Þóra Jónsdóttir verði keppendi í golfi á næstu Ólympíuleikum. Næstu leikar fara fram í Tókýó í Japan árið 2020 og er Valdís Þóra þessa stundina á meðal þeirra 60 keppenda sem kæmust inn á ÓL.

Ólympíuleikarnir í Tókýó í Japan verða settir þann 24. júlí árið 2020 eða eftir tæplega tvö ár. Ef Valdís heldur sér á meðal þeirra 60 efstu á ÓL styrkleikalistanum í golfi kæmist yrði hún aðeins sjöundi Skagamaðurinn sem kæmist inn á þetta risamót sem allt afreksfólk í íþróttum stefnir á að ná.

Eins og staðan var þann 13. nóvember 2018, eru bæði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (Leynir) inni á keppendalistanum í kvennaflokki. Það verður því spennandi að fylgjast með þróun mála á þessum lista allt fram til í fyrstu vikuna í júlí 2020 – en þá verður endanlegur keppendalisti gefinn út.



Ólafía er í sæti nr. 44 á ÓL listanum og Valdís Þóra er í sæti nr. 53. á þessum lista.

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Atvinnukylfingar í kvenna – og karlaflokki hafa því enn góðan tíma til að ná sem bestri stöðu á heimslistanum til þess að eiga möguleika á að komast inn á ÓL.

Eins og áður segir hafa sex íþróttmenn – og konur sem eru fædd á Akranesi keppt á Ólympíuleikunum. Fimm þeirra hafa keppt í sundi og einn í badminton. Sundkonurnar Ragnheiður Runólfsdóttir og Hrafnhildur Ýr Kristjánsdóttir kepptu tvívegis á sínum ferli á ÓL en aðrir Skagamenn náðu aðeins einum ÓL-leikum á sínum ferli.

1972
München – Þýskaland
Finnur Garðarsson sund,
Guðjón Guðmundsson, sund

1984
Los Angeles – Bandaríkin
Ingi Þór Jónsson, sund

1988
Seoul – Suður-Kórea

Ragnheiður Runólfsdóttir, sund

1992
Barcelona – Spánn
Árni Þór Hallgrímsson, badminton
Ragnheiður Runólfsdóttir, sund

2000
Sydney – Ástralía
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, sund

2004
Aþena – Grikkland
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, sund

Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda í golfíþróttinni og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista.

Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

ÓL listinn í kvennaflokki í golfi (13. nóvember 2018)

1. Ariya Jutanugarn, Thaíland
2. Sung Hyun Park, Suður-Kórea
3. So Yeon Ryu, Suður-Kórea
4. Inbee Park, Suður-Kórea
5. Minjee Lee, Ástralía
6. Nasa Hataoka, Japan
7. Georgia Hall, Bretland
8. Lexi Thompson, Bandaríkin
9. Brooke M. Henderson, Kanada
10. Jin-Young Ko, Suður-Kórea
11. Shanshan Feng, Kína
12. Jessica Korda, Bandaríkin
13. Lydia Ko, Nýja-Sjáland
14. Carlota Ciganda, Spánn
15. Moriya Jutanugarn, Thaíland
16. Anna Nordqvist, Svíþjóð
17. Charley Hull, Bretland
18. Ai Suzuki, Japan
19. Pernilla Lindberg, Svíþjóð
20. Caroline Masson, Þýskaland
21. Teresa Lu, Taívan
22. Azahara Munoz, Spánn
23. Wei-Ling Hsu, Taívan
24. Su-Hyun Oh, Ástralía
25. Sandra Gal, Þýskaland
26. Yu Liu, Kína
27. Gaby Lopez, Mexíkó
28. Aditi Ashok, Indland
29. Anne Van Dam, Holland
30. Ashleigh Simon, Suður-Afríka
31. Suzann Pettersen, Noregur
32. Celine Boutier, Frakkland
33. Karine Icher, Frakkland
34. Maria Torres, Púertó-Ríkó
35. Lee-Anne Pace, Suður-Afríka
36. Nicole Broch Larsen, Danmörk
37. Mariajo Uribe, Kólumbía
38. Alena Sharp, Kanada
39. Nanna Koerstz Madsen, Danmörk
40. Klara Spilkova, Tékkland
41. Daniela Darquea, Ekvadór
42. Dottie Ardina, Filipseyjar
43. Laetitia Beck, Ísrael
44. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Ísland
45. Laura Gonzalez Escallon, Belgía
46. Stephanie Meadow, Írland
47. Ursula Wikstrom, Finnland
48. Christine Wolf, Austurríki
49. Giulia Molinaro, Ítalía
50. Tiffany Chan, Hong Kong
51. Marianne Skarpnord, Noregur
52. Leona Maguire, Írland
53. Valdís Þóra Jónsdóttir, Ísland
54. Albane Valenzuela, Sviss
55. Julieta Granada, Paragvæ
56. Ana Menendez, Mexíkó
57. Charlotte Thomas, Singapúr
58. Caroline Rominger, Sviss
59. Noora Tamminen, Finnland
60. Sarah Schober, Austurríki

Auglýsing