Valdís Þóra keppir á lokamóti sterkustu mótaraðar Evrópu

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni,  hefur leik á fimmtudaginn á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Mótið heitir Andalucia Costa del Sol Open Espana og verður leikið á La Quinta vellinum.

Íþróttamaður Akraness 2017 er í 33. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Valdís Þóra er örugg með keppnisrétt á næsta tímabili á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.

Mótið á Spáni er 12 mótið á tímabilinu hjá Valdís Þóru.

Besti árangur hennar er 3. sætið á móti sem fram fór í Ástralíu snemma á þessu ári. Valdís hefur tvívegis endað í 3. sæti á LET Evrópumótaröðinni – og er það besti árangur sem íslenskur atvinnukylfingur hefur náð á atvinnumóti í efsta styrkleikaflokki.

Auglýsing



Auglýsing