Skagalif.is – nýr upplýsingavefur á vegum Akraneskaupstaðar

Auglýsing


Skagalíf er nýr upplýsingavefur fyrir íbúa á Akranesi og alla þá sem vilja heimsækja Akranes.

Á Akranesi er fjölbreytt menningar og frístundastarf og er markmið með þessum vef að koma á einn aðgengilegan stað öllu því sem er í boði á Akranesi, frá frístundastarfi og námskeiðum að menningu og listum.

Skagalif.is 

Fenginn var styrkur frá þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs í uppsetningu á þessum nýja vef. Vefurinn er hannaður af fyrirtækinu Stefnu ehf. og fór hann í loftið þann 12. október 2018. Vakin er athygli á því að vefurinn er enn í þróun og munu upplýsingar bætast jafn og þétt við næstu mánuði.

Á vefnum er hægt að skrá inn viðburði sem birtast í viðburðadagatali um leið og þeir hafa verið samþykktir inn. Dagatalið er samtengt við heimasíðu Akraneskaupstaðar (www.akranes.is) og birtist viðburðinn þar einnig.

Vefnum er skipt upp í þrjá flokka, í fyrsta lagi tómstundir en undir því má finna upplýsingar um frístundir og námskeið, í öðru lagi menningu en undir því má finna upplýsingar um hátíðir, listir og söfn og í þriðja lagi útivist en undir því má finna upplýsingar og göngu- og hjólaleiðir, leikvelli og útivistarsvæði.

Umsjónaraðilar vefs:
Ella María Gunnarsdóttir forstöðumaður menningar- og safnamála
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði
Heiðrún Janusdóttir verkefnastjóri æskulýðs- og forvarnarmála
Lúðvík Gunnarsson deildarstjóri æskulýðs- og forvarnarmála
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri á stjórnsýslu- og fjármálasviði

Hægt er að senda inn fyrirspurnir á netfangið [email protected] með tilvísun í þennan vef.

Auglýsing