Gengið til viðræðna við Work North um niðurrif á strompinum

Á fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar sem fram fór 26. nóvember var samþykkt að ganga til viðræðna við Work North um niðurfellingu strompsins á Sementsreitnum.

Á fundinum var lagt fram minnisblað frá Mannvit um niðurrifið.

Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags – og umhverfisráðs segir í samtali við Skagafréttir að vonir standi til þess að strompurinn verði rifinn niður snemma á næsta ári.

„Það eru tveir kostir í stöðunni, að rífa strompinn í einu lagi eða að búta hann niður. Verkfræðistofan Mannvit mun leggja línurnar þegar við höfum fengið allar upplýsingar. Það er að mörgu að hyggja, öryggismálin þurfa að vera 100%, og á því sviði erum við að safna gögnum,“ segir Ragnar.

Work North hefur á undanförnum misserum unnið að niðurrifi á ýmsum mannvirkum á Sementsreitnum. Verkið er aðeins á eftir áætlun. Ragnar segir að beðið sé eftir því að skip kom í Akraneshöfn til þess að taka við brotajárni og verkinu ætti að ljúka fljótlega eftir komu skipsins.

Hér fyrir neðan eru myndir sem Alexander Eiríksson tók. 

Auglýsing



Auglýsing