Forsætisráðherra Íslands kom í heimsókn í FVA



Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, kom í heimsókn í dag í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.

Vel var tekið á móti Katrínu og ávarpaði hún nemendur og starfsfólk í hátíðarsal FVA.

Katrín fór um skólann þar sem hún kom víða við, þar á meðal í kennslustund í lýðheilsu hjá nemendum á starfsbraut og í kennslustund í líffræði.

Einnig var gengið um raf-, tré-, og málmiðngreinadeildir skólans og nemendur og kennarar kynntu þau viðfangsefni sem þar eru efst á baugi um þessar mundir.

Notaði forsætisráðherra hvert tækifæri til að spjalla við nemendur og kennara um starfið í skólanum og ýmsa aðra hluti.

Nánar má lesa um heimsóknina á vef FVA. 

Auglýsing



Auglýsing