Strompurinn fær líflínu – fellingu frestað um sólarhring vegna veðurs



Miklar öryggisráðstafanir verða gerðar þegar skorsteinn Sementsverksmiðjunnar verður felldur föstudaginn 22. mars næstkomandi klukkan 12:15.

Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að strompurinn yrði felldur fimmtudaginn 21. mars en vegna veðurs hefur aðgerðinni verið frestað um einn sólarhring.

Skorsteinninn verður felldur í tveimur hlutum. Efri hlutinn kemur til með að falla í suðaustur, en neðri hlutinn fellur í suðvestur. Neðri hlutinn verður felldur nokkrum sekúndum eftir að efri hlutinn byrjar að falla. Rétt fyrir fellingu verður gefið hljóðmerki, sem er aðvörun um að felling verði eftir nokkrar mínútur.

Þegar felling er yfirstaðin verður gefið hljóðmerki um að felling sé yfirstaðin og hætta liðin hjá. Öryggissvæði við fellingu er hringur í 160 m fjarlægð umhverfis skorsteininn. Innan þessa svæðis má engin manneskja vera óvarinn.

Myndin sem fylgir þessari frétt sýnir hvar götum verður lokað fyrir fellingu. Sunnubraut, Merkigerði og Suðurgötu verður lokað um 30-60 mínútum fyrir fellingu. Faxabrautinni verður lokað að morgni fellinga dags. Einnig sýnir myndin öryggissvæðið umhverfis skorsteininn og þau svæði sem að fólk getur fylgst með fellingunni.

Íbúar í nokkrum húsum við Suðurgötu verða beðnir um að yfirgefa hús sýn. Íbúar húsa innan öryggissvæðisins, sem ekki verða beðnir um að yfirgefa hús sín, verða beðnir um að vera í skjóli frá gluggum, þegar felling verður.

Hættan við svona aðgerð er að það verði frákast, þ.e. fljúgandi steinar, þegar skorsteinninn fellur. Öryggisráðstafanir miðast m.a. við að eitthvað gæti farið öðruvísi en ætlað er. Umfram allt er það öryggi allra við þessa aðgerð sem skiptir mestu máli.

Björgunarfélag Akraness og Lögreglan á Vesturlandi munu aðstoða við lokanir og eftirlit á svæðinu. Settir verða upp mælar til að mæla titring frá fallinu. Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að virða öryggisreglur við fellingu skorsteinsins og einnig að hafa gætur á gæludýrum.

Auglýsing



Auglýsing