Magnea og Margrét stóðu upp úr í upplestrarkeppni grunnskólanna



Lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fór fram í Tónbergi s.l. fimmtudag.

Alls lásu 12 nemendur úr 7. bekk úr báðum grunnskólum Akraness, sögur og ljóð, sex þátttakendur úr hvorum skóla.

Formlegur undirbúningur nemenda í 7. bekk fyrir keppnina hófst 16. nóvember á Degi íslenskrar tungu. Undankeppnir voru haldnar í hvorum skóla þar sem sex fulltrúar hvors skóla voru valdnir.

Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar.

Upplesarar ársins 2019:

Magnea Sindradóttir úr Grundaskóla og Margrét Björt Pálmadóttir úr Brekkubæjarskóla.

Sigurvegarar fengu í verðlaun peningagjöf og bók. Upplesarar kvöldsins fengu bókagjöf og einnig þeir aðilar sem komu að undirbúningi keppninnar. Allir nemendur í 7. bekk fengu viðurkenningaskjal fyrir sína þátttöku.

Heiðursgestur lokahátíðarinnar að þessu sinni var Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir og sagði hún keppendum frá því hversu mikilvægt er að fylgja eftir draumum sínum og hafa kjark og þor til að standa frammi fyrir áskorum lífsins.

Flutt voru tónlistaratriði frá nemendum við Tónlistarskóla Akraness sem einnig eru nemendur í 7. bekk. Hallberu Jóhannesdóttur bókasafnskennara voru færðar sérstakar þakkir en hún hefur komið að keppninni frá byrjun en nú í vor er komið að starfslokum hjá henni.

Keppnin hefur sjaldan verið jafnari en í ár og áttu dómarar, þau Halldóra Jónsdóttir, sr. Þráinn Haraldsson og Jakob Þór Einarsson, erfitt val fyrir höndum.

Smelltu hér fyrir fleiri myndir á vef Akraneskaupstaðar. 

Auglýsing



Auglýsing