„Ófriður“ á Mánabrautinni leystur með lögregluaðgerð

Skotvopn, morð og lögregluæfingar hafa komið við sögu á undanförnum mánuðum í hinni friðsælu götu Mánabraut á Akranesi.

Spennandi lokaatriði í sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð var tekið upp á þessum slóðum. Kannski hefur það atriði orðið til þess að lögreglan valdi þann stað til að æfa viðbrögð gegn einstaklingum með skotvopn.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/02/10/spennandi-lokaatridi-i-ofaerd-var-tekid-upp-a-akranesi/

Snemma í gær morgun fór fram lögregluæfing í gamla skrifstofuhúsnæði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi.

Lögreglumenn frá Akranesi og sérsveit ríkislögreglustjóra æfðu þar saman.

Verkefnið var að fást við vopnaða einstaklinga þar sem hætta var á að um gíslatöku væri að ræða.

Lögreglumenn á Akranesi voru fyrstir á vettvang en fengu síðan aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra sem kom á vettvang og tók við verkefninu.

Nemendur og kennarar í lögreglunáminu tóku að sér að leika vopnaða mótaðila og gísla.

Bráðatæknar frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins sem starfa með sérsveitinni tóku einnig þátt í æfingunni ásamt því að björgunarsveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu mættu með stjórnstöðvarbílinn sem gengur undir nafninu ,,Björninn“ og var hann notaður sem vettvangsstjórnstöð lögreglunnar.

Æfingin gekk mjög vel og öll æfingamarkmið náðust. Vonum að þeim vegfarendum sem tóku eftir æfingunni hafi ekki brugðið, en sérstök æfingavopn eru notuð á svona æfingum.