Glæsileg grafík í ÍATV vekur athygli – sjáðu mörkin úr leik ÍA gegn Blikum


ÍATV hefur á undanförnum misserum skipað sér í fremstu röð í útsendingum á íþróttaviðburðum.

Það er öflugur hópur sjálfboðaliða sem hefur rifið þetta verkefni áfram með glæsilegum árangri.

Í útsendingu ÍATV í gær frá leik ÍA og Breiðabliks vakti ný grafík athygli.

Fagmannlega gert og mikið lagt í þessar útsendingar.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leik ÍA og Breiðabliks auk viðtals við Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfara ÍA.