Tónlistin í kringum ÍA krufin í hlaðvarpsþættinum Skagahraðlestin


Skagahraðlestin er komin af stað á ný. Í öðrum þætti hlaðvarpsþáttarins er tónlistin í kringum ÍA skoðuð.

Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt. Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson eru mennirnir sem stýra Skagahraðlestinni af röggsemi.

Það er gestkvæmt í þættinum en ritstjórn þáttarins valdi fjögur bestu stuðningsmannalög ÍA.

Í þættinum sem kom út í dag fá hlustendur að heyra um lögin frá Sigurði Guðmundssyni (Skagamenn skora mörkin), Gísla Gíslasyni (Gulir og Glaðir), Pétri Óðinssyni (Gula Skagahraðlestin) og Flosa Einarssyni (Þetta lag er ÍA).

Í lok þáttar komu svo Arnar Már Guðjónsson, Hallur Flosason og Viktor Jónsson í spjall þar sem m.a. var valið besta stuðningsmannalag ÍA og rætt um tónlistarferil Halls og Viktors.

Þátturinn hefur það að markmiði að allir geta haft gaman af, hvort sem fólk fylgist með knattspyrnu eður ei. Lítið verður rætt um nýaflokna leiki eða taktísk atriði en því meira um eftirminnileg atvik úr sögu félagsins og annað skemmtilegt sem tengist því.

Vertu velkominn um borð kæri hlustandi!

Umsjónarmaður: Björn Þór Björnsson
Tæknimál: Snorri Kristleifsson