Drífa og Erla slá í gegn á HM öldunga í badminton


Heimsmeistaramót öldunga í badminton fer fram þessa dagana í Katowice, Póllandi. Tveir íslenskir leikmenn taka þátt í mótinu en það eru þær Erla Björg Hafsteinsdóttir BH og Drífa Harðardóttir ÍA.

Þær taka þátt í tvíliðaleik kvenna í flokknum 40+ en einnig taka þær þátt í tvenndarleik.

Erla Björg spilar með Mark Mackay frá Skotlandi og keppa þau í flokknum 40+ en Drífa spilar með Dananum Jesper Thomsen í flokknum 35+.

Erla og Drífa gerðu sér lítið fyrir og unnu japanska parið Nami Fukui og Rie Matsumoto en þeim var raðað númer þrjú inn í mótið.

Erla og Drífa byrjuðu leikinn vel en leikurinn var frekar jafn allan tímann, þær japönsku komu aðeins ákveðnari inn í seinni lotunni.

Oddalotan var gríðarlega jöfn en Erla og Drífa komust svo yfir seinni hluta lotunna. Þær japönsku komust svo aftur inn í leikinn en íslensku stelpurnar náðu að klára leikinn á lokametrunum.

Erla og Drífa unnu leikinn 21-16, 17-21 og 24-22.

Þær Erla og Drífa mæta pólsku pari í 16 liða úrslitunum en sá leikur fer fram á fimmtudag.